Home » VÍDJÓ
Podcast: VÍDJÓ
Hefurðu ekki séð hana? Þú VERÐUR að sjá hana!
-
119 Hringavitleysa III: Sælir King (Lord of the Rings III: The Return of the King)
Fróði ferðast ennþá með hringinn ásamt Sóma félaga sínum og þurfa þeir nauðsynlega að komast óséðir framhjá öllum illmennunum sem hafa safnast saman hjá Sauroni. Aragorn sér nú að hann […]
-
118 Hringavitleysa II: Tvennutilboð (Lord of the Rings II: Two Towers)
Nú þegar Fróði og Sámur hafa orðið viðskila við fylgdarsveina sína liggur þeim mikið á að komast klakklaust á leiðarenda. Þeir vita mest lítið um hvernig fór fyrir hinum sem […]
-
117 Hringavitleysa I: Ferðaveldið (Lord of the Rings I: The Fellowship of the Ring)
Þegar Hobbitanum Fróða áskotnast gullhringur með dulda krafta, þarf hann að taka á honum stóra sínum til að standast töfra hringsins. Hann ákveður ásamt vini sínum Gandálfi að koma hringnum […]
-
116 Hoppípolla (Singin’ in the Rain)
Ungur áhættuleikari í Hollywood fær stóra tækifærið sitt og verður stjarna á hvíta tjaldinu. Hann og mótleikkona hans þykjast vera í ástarsambandi til að auka á aðsókn á næstu mynd, […]
-
115 Hvert þó í hoppandi (Mulholland Drive)
Ung leikkona kemur til Hollywood til að meika það en gengur ekki betur en svo að hún missir vitið þegar ástkona hennar sem er einnig leikkona hættir með henni fyrir […]
-
114 Eiríkur Fjalar (Ed Wood)
Ed Wood reynir fyrir sér sem kvikmyndaleikstjóri í Hollywood og heldur ótrauður áfram þrátt fyrir margar hindranir og hæfileikaskort. Hann keyrir verkefnin sín áfram á jákvæðni og með hjálp þekkts […]
-
113 Dótadagur 3: Leikfangar (Toy Story 3)
Þegar Andy, eigandi margvíslegra leikfanga, er á leiðinni í háskóla ætlar hann að koma gömlu leikföngunum sínum fyrir uppá háalofti. Þau enda óvart í ruslinu og þurfa svo að koma […]
-
112 Ná vá 2: Nögun við dögun (Evil Dead 2)
Ungt og efnilegt par ákveður að leggja leið sína í lítið sumarhús en þar finna þau forna bók sem býr yfir illsku. Þau komast snögglega að því að illskan lifir […]
-
111 Babbi segir, Babbi segir (The Godfather II)
Í þessum formála og eftirmála af kvikmyndinni Babbi segir sjáum við upprisu og hnig fjölskylduveldisins sem við kynntumst í fyrstu myndinni. Við fylgjumst með Vito Corleone þegar hann kemur fyrst […]
-
110 Babbi segir (The Godfather)
Höfuð fjölskyldunnar lendir í bráðri lífshættu eftir skotárás og er einnig kominn á aldur svo þá þarf að finna hæfan arftaka í systkinahópnum, sem getur viðhaldið veldinu sem er búið […]
-
109 Jólin dúkka upp (The Muppet Christmas Carol)
Heldri maður og lánadrottinn er viðskotaillur í samskiptum sínum við starfólkið sitt og raunar allt fólk sem hann umgengst. Á jólanótt er hann svo heimsóttur af draugum sem veita honum […]
-
108 Ríðingafélagið Grímur (Eyes Wide Shut)
Eiginmaður og faðir kemst á snoðir um ankannalega skemmtun sem felur í sér mikla nekt, samfarir og grímunotkun, og langar mjög mikið að komast í veisluna án þess að láta […]
-
107 Bráðum koma stressuð jólin (Christmas Vacation)
Óhandlaginn heimilisfaðir vill halda hin fullkomnu jól með fjölskyldunni sinni, en fær svo inn á heimilið foreldra sína, tengdaforeldra og frænda og fjölskyldu hans, ásamt hundinum þeirra sem er að […]
-
106 Ferðamátar (Planes, Trains and Automobiles)
Einn auglýsingastofustarfsmaður er að leggja af stað heim til sín fyrir Þakkargjörðarhátíðina til að eyða henni í faðmi fjölskyldunnar sinnar þegar að á vegi hans verður farandsölumaður sem á heldur […]
-
Brot af því besta – Þættir 011-015
Smakkseðill úr þáttum 11 til 15, þessi brot er að finna í umfjöllun um myndirnar Tóti á móti, (My Neighbour Totoro), Hörundsár (Scarface), Olnbogarými (Office Space), Flottar á flótta (Thelma […]
-
105 Barði (Rocky)
Fátækum og hirðulausum ónytjung er boðið að keppa á móti stærsta hnefaleikakappa Bandaríkjanna og hefur hann fimm vikur til að undirbúa sig. Hann ber í svínsskrokka og hleypur um Philadelphiuborg […]
-
104 Nóg til og meira frammi (Babettes Gæstebud)
Franskur kokkur fær athvarf hjá tveimur systrum og unir vel. Hún vinnur svo í frönsku lottói og ákveður að nýta peninginn til að bjóða til alvöru franskrar veislu í smábænum […]
-
103 Sláturfélag Suðurríkjanna (The Texas Chain Saw Massacre)
Fimm ungmenni sem stúdera gang himintunglanna ætla að kíkja á eyðibýli saman, en gleyma að taka bensín og þurfa að banka uppá í nærliggjandi húsi til að fá aðstoð við […]
-
102 Viltu vera memm? (Låt den rätte komma in)
Ungur drengur kynnist nágranna sínum sem reynist vera vampíra. Með þeim myndast mikill vinskapur og hjálpar hún honum að klekkja á bekkjabræðrum hans sem hafa verið að gera honum lífið […]
-
101 That’s So Raven (Hrafninn flýgur)
Á víkingatímum á Vík í Mýrdal, mætir Gestur á svæðið sem hyggur á blóðugar hefndir. Hann egnir öllum gengjum saman og kemur upp á milli fóstbræðra í ofanálag, allt til […]
-
100 Klappstyrjöldin (Bring It On)
Nú eru góð ráð dýr, þegar söguhetjan okkar sem er nýkjörin fyrirliði klappstýruliðsins, kemst að því að öll þeirra fyrri atriði eru stolin frá öðru liði sem hefur ekki haft […]
-
099 Bjartur (Akira)
Ungir drengir í mótorhjólagengi lenda í hættu þegar að einn þeirra smitast af telekínetískum ofurkröftum. Smitið nær heljartökum á honum, og reynist honum lífshættulegt.
-
Brot af því besta – Þættir 006-010
Smakkseðill úr þáttum 6 til 10, þessi brot er að finna í umfjöllun um myndirnar Meðal dóna og þrjóta í Minnesóta (Fargo), KJAMS (Jaws), Hugguleg án heimanmunds (Pretty Woman), Reimholt […]
-
098 Kung fú sjúbbídú (Kung Fu Hustle)
Í einum fátækasta hluta Shanghai borgar er blokk með samliggjandi svalir og mikinn samgang íbúa sem eiga það sameiginlegt að vera með sama leigusalann. Leigusalinn býr líka í blokkinni en […]
-
097 Strákarnir okkar (Team America: World Police)
Alheimslögregla Bandaríkjanna er orðin ráðþrota í baráttunni við hryðjuverkamenn og ræður því til sín Gary, stærsta leikarann á Broadway til að svindla sér inn í herbúðir óvinanna. Hann beitir öllum […]
-
096 Vonlaust viðhald (Fatal Attraction)
Þegar heimilisfaðir, sem þykir hjónaband sitt farið að súrna, ákveður að halda framhjá eiginkonu sinni með tælandi samstarfskonu, kemst hann fljótt að því að hann hefði betur haldið upp um […]
-
095 Bella Dýramær (Beauty and the Beast)
Fríða er ungur bókaormur sem þyrstir í ævintýri og þegar föður hennar er rænt af dýrslegri skepnu í álögum, ákveður hún að hún skuli bjóða sjálfa sig fram sem fanga […]
-
094 Hlaupastingur (Blade Runner)
Í dystópískri framtíð eru löggur sem veiða vélmenni sem eru svo raunveruleg að það sést ekki munur á þeim og venjulegu fólki.
-
093 Bleikir mávar (Pink Flamingos)
Dragdrottningin og glæpakvendið Divine býr í hjólhýsi ásamt fjölskyldu og vinum og stærir sig af því að vera sú óhugnalegasta í bransanum. Þegar hjónakorn nokkur í bænum fá veður af […]
-
092 Flóttamannabúðir (The Great Escape)
Stríðsföngum sem hafa verið iðnir við að reyna að strjúka úr fangabúðum nasista er safnað saman í einar fangabúðir sem er mjög erfitt að strjúka úr. Þeir eru hins vegar […]
-
091 Flottur Jackie (Police Story)
Jackie Chan leikur lögreglumann sem þarf að vernda mikilvægt vitni í mafíumáli, og lendir í ýmsum ógöngum meðan að á því stendur. Það eru óþokkar á hverju strái sem bíða […]
-
090 Í bláum skugga (Blue Velvet)
Þegar ungur drengur finnur afskorið eyra í grasinu er ekkert sem fær hann stöðvað til að komast til botns í málinu, hvort manneskjan sem eyrað tilheyrði sé á lífi og […]
-
089 Í harðbakkann slær (A Hard Day’s Night)
Bítlarnir eru orðnir heimsfrægir og geta hvergi vel við unað án þess að aðdáendur elti þá uppi öskrandi og æpandi. Á einu tónleikaferðalagi þeirra er afi Paul McCartney dreginn með […]
-
088 Dragbjört (Tootsie)
Þegar óvinsæll en hæfileikaríkur leikari fær hvergi vinnu tekur hann upp á því að klæða sig sem kona og reyna fyrir sér í hlutverki í vinsælli sápuóperu. Hann kemst þó […]
-
087 Víðis saga (Willow)
Tveggja barna faðir finnur unga prinsessu í polli og þarf að leggja á sig heljarinnar leiðangur til að koma henni í skjól frá illa innrættum yfirvöldum sem vilja ráða hana […]
-
Brot af því besta – Þættir 001-005
Smakkseðill úr þáttum 1 til 5, þessi brot er að finna í umfjöllun um myndirnar Þetta reddast, (A New Hope), Aktu Taktu (Bonnie & Clyde), Brúðarbrölt (The Princess Bride), Jarmsaga […]
-
086 Pútter Haraldur (Happy Gilmore)
Þegar amma hans Happy missir húsið sitt út af skattsvikum og þarf hann að leita allra ráða til að borga það upp svo hún þurfi ekki að búa á elliheimili […]
-
085 Skák og lát (Sjunde inseglet/The Seventh Seal)
Svíþjóð á miðöldum var ekkert dýrðarríki, en þar geisaði plága sem hirti öll þau sem gættu sín ekki á henni. Hin ljóðræna mynd Ingmars Bergman segir frá hópi fólks sem […]
-
084 Steinsmuga (The Rock)
Þegar gamall hermaður ákveður að setja saman hryðjuverkateymi og halda ferðalöngum föngnum í þekktasta fangelsi allra tíma, gegn því að fá ríkisstjórn Bandaríkjanna til að viðurkenna mistök og endurgreiða gamlar […]
-
083 Mættastur (Being There)
Maður á besta aldri sem hefur aldrei farið út fyrir hússins dyr, né setið í bíl eða talað við fleiri en tvær manneskjur, fær loksins að upplifa það sem er […]
-
082 Grýlurnar (The Craft)
Þegar ung og fjölkunnug stúlka byrjar í nýjum skóla, kynnist hún fljótlega þremur vinkonum sem hafa einnig verið að gæla við galdra. Þær ákalla almættið og beita miskunnarlaust álögum á […]
-
081 Látnir skrifa ljóð (Dead Poets Society)
Robin Williams leikur kennara sem kennir í helst til hefðbundum skóla þar sem reglur um samskipti og kennsluhætti eru af gamla mátanum. Hann lætur það ekki á sig fá og […]
-
080 Öðruvísitölufjölskyldan (The Incredibles)
Við fylgjumst með úthverfafjölskyldu þar sem allir fjölskyldumeðlimir búa yfir ofurkröftum, en þeim er gert að fela og bæla þá niður samkvæmt lögum. Þeim tekst þó ekki lengi að fara […]
-
079 Hvolpasveitin (Reservoir Dogs)
Nokkrir krimmar eru komnir saman til að framkvæma bankarán fyrir sameiginlegan vin, en þar sem þeir þekkjast lítið sem ekkert áður en ránið á sér stað, vita þeir ekki að […]
-
078 Lítill í sér (Big)
Tom Hanks leikur smádreng sem fær óvænt fullorðinslíkama til afnota um óákveðinn tíma. Hann nýtir tækifærið og kynnir sér bæjarlífið í borginni og byrjar í vinnu þar sem hann sér […]
-
077 Babb í bátinn (Titanic)
Stærsta skip sem smíðað hafði verið lagði af stað í sína jómfrúarferð yfir Atlantshafið árið 1912. Á skipinu var fjöldi fólks úr öllum þjóðfélagsstigum og segir sagan frá ungum elskendum […]
-
076 Vopnum búinn og viti rúinn (Lethal Weapon)
Tvær löggur kynnast náið og vel þegar þær eru látnar vinna saman við rannsókn á dauðsfalli ungar konu. Í fyrstu er ekki talið að andlát hennar hafi borið að með […]
-
075 Líf, ertu að grínast? (It’s a Wonderful Life)
Lánadrottinn í litlum bæ dreymir um að komast til útlanda og skoða heiminn en líf hans dregur hann alltaf strax til baka í að byggja upp smábæinn sinn með lánum […]
-
074 Rokklingarnir (Gremlins)
Uppfinningafaðir gefur syni sínum lítið dýr að gjöf sem þarf einungis að passa að þrennu leyti; að það blotni ekki, sé ekki í mikilli birtu eða sólarljósi, og að það […]
-
073 Í guðanna bænum (Cidade de Deus)
Í fátæku hverfi í Rio de Janeiro eru ung börn í glæpagengjum, sem stýrð eru af aðeins eldri börnum. Aðal söguhetjan okkar segir frá lífinu í hverfinu og hvernig hann […]
-
072 Flippskúnkar á flandri (Bill & Ted’s Excellent Adventure)
Bill og Ted eru á leiðinni í sögupróf í menntaskólanum sínum en hafa lítið náð að læra fyrir það. Þeim eru settir þeir afarkostir að ná prófinu, ellegar falla úr […]
-
071 Glataðir gaurar (The Lost Boys)
Tveir bræður eru nýfluttir til smábæjar í Kaliforníu og eru þar að fóta sig og reyna að kynnast nýjum vinum. Það gengur ekki betur en svo að fyrsti vinahópur sem […]
-
070 Trúðslæti og leðurblæti (Batman)
Leðurblökumaðurinn og Jókerinn etja kappi hvor við annan í Gotham borg.
-
069 Púkó Boss (The Devil Wears Prada)
Við fylgjum aðalsöguhetjunni á vit tískuævintýranna en hún stefnir að því að verða blaðakona, og þangað til sá draumur getur ræst þarf hún að vinna fyrir tískublað sem henni þykir […]
-
068 Klórað í krakkana (A Nightmare on Elm Street)
Vondur karl með klær ofsækir menntaskólanemendur meðan þau sofa og verður þeim stundum að bana. Þau þurfa að beita klækjum til að reyna að stöðva þetta framferði hans.
-
067 Konan við 37,2 gráður (Betty Blue / 37°2 le matin)
Erótískt sálfræði drama um unga konu sem flytur inn með ástmanni sínum sem er smiður og óútgefinn skríbent í hjáverkum. Hún hrífst af skrifum hans og hvetur hann til að […]
-
066 Kallar í fjalli ansa kalli (Close Encounters of the Third Kind)
Þegar venjulegur heimilisfaðir kemst í kynni við geimskip grípur hann óstjórnleg löngun að skapa það sem hann taldi að geimverurnar hefðu sýnt honum. Hann missir áhuga á öllu öðru en […]
-
065 Voff voff bang bang (Old Yeller)
Fjölskylda í Suðurríkjum Bandaríkjanna tekur að sér villihund sem reynist fjölskyldunni fljótt vinur í raun. Hann aðstoðar þau við bústörfin af mikilli kostgæfni.
-
064 Fullt hús matar (Delicatessen)
Slátrari leigir út íbúðir í fjölbýli og selur kjöt og matvöru á jarðhæðinni. Hann á það til að fela uppruna kjötmetisins fyrir kaupendum, en oftar en ekki eru það nýjir […]
-
063 Hart í hári (Hairspray)
Ung og íturvaxin skólastúlka kemst í vinsælasta dans-sjónvarpsþáttinn í Baltimore. Ásamt því að auka á fjölbreytileika í líkamsstærðum í danshópnum með nærveru sinni, lætur hún ekki þar við sitja heldur […]
-
062 Brimprettir (Point Break)
Óskabarn Hollywood, Keanu Reeves, leikur lögreglumann sem þarf að komast í mjúkinn hjá brimbrettaköppum til að rannsaka fjölda bankarána sem hann telur þá ábyrga fyrir. Hann finnur fljótt hvernig öldurnar […]
-
061 Te hjá tengdó (Get Out)
Svartur ljósmyndari eyðir helginni hjá hvítri tengdafjölskyldu sinni í þeirri von að kynnast þeim betur en áttar sig smátt og smátt á því að tilgangur heimsóknarinnar er allur annar en […]
-
060 Svikinn héri (Who Framed Roger Rabbit)
Samlífi teiknimynda og fólks í Hollywood gengur framar vonum þangað til að illkvittinn einstaklingur ætlar sér að eyða öllum teiknimyndum úr raunveruleikanum með heimatilbúinni sýru. Hann ræðst ekki á garðinn […]
-
059 Slest upp á vínskápinn (Withnail and I)
Tveir atvinnulausir leikarar telja að þeir þurfi hvíld frá daglegu amstri í borginni og fá lánaðan sveitabæ. Þegar þeir koma á staðinn tekur allt annað en hvíld við, en þeir […]
-
058 Bingó í Vinabæ (When Harry Met Sally…)
Harry og Sally kynnast ung að árum þegar þau keyra samferða til New York, sem má sjá eins og þriðja karakter myndarinnar. Þau hittast öðru hverju á förnum vegi og […]
-
057 Alein 2: Fleiri en ein (Aliens)
Ripley rekur loks á slóðir mannfólks en hún hefur verið sofandi í fleiri tugi ára. Á meðan hún svaf og sveif um geiminn réðust stórfyrirtæki í að byggja upp samfélag […]
-
056 Hundfúlt eftir hádegi (Dog Day Afternoon)
Þrír bankaræningar hefja bankarán án þess að plana það neitt sérstaklega í þaula. Einn þeirra heltist úr lestinni áður en hasarinn hefst og undir hinum tveimur er þá komið að […]
-
055 Bragðarefur í Borgartúni (The Wolf of Wall Street)
Verðbréfasalinn Jordan Belford fær vinnu hjá eftirsóttu fyrirtæki í fjármálageiranum og hann er ekki lengi að komast upp á lagið með að afla sér tekna á vafasaman máta. Fljótlega kemur […]
-
054 Fenris laus úr læðingi (Ferris Bueller’s Day Off)
Þó að Ferris sé með flottar einkunnir og elskaður og dáður af samnemendum sínum hefur hann gaman að því að taka lífinu létt og skólanum ekki allt of alvarlega. Hann […]
-
053 Ljómandi (The Shining)
Faðir, móðir og ungur sonur þeirra flytja á hótel til að gæta þess yfir vetrartímann á meðan það er lokað. Þau komast fljótlega að því að einangrunin sem og hryllileg […]
-
052 Strætóinn sem gat ekki hægt á sér (Speed)
Sérsveitarmaður sem sérhæfir sig í sprengjuleitum þarf að bjarga farþegum í strætisvagni frá hræðilegum dauðdaga, en vagninn þeirra er útbúinn hraðasprengju sem virkjast um leið og hraðinn fer undir 80 […]
-
051 Regnboginn (Cinema Paradiso)
Lítill og lævís drengur hangir mikið í bíóhúsinu í smábænum sínum á Sikiley, þar sem sýningarstjórinn kennir honum helstu tökin í bíóhúsabransanum. Þar fæðist ást hans á kvikmyndum og eftir […]
-
050 Stjörnustríð – Kafli VI: Jedúddamía (Return of the Jedi)
Nú þegar Logi Geimgengill hefur lokið framhaldsnáminu sínu í Væringjafræðum ákveður hann að herja á Keisaraveldið og föður sinn í leiðinni, en hann er þar innsti koppur í búri. Þau […]
-
049 Barningur í Bjarnarborg (Der Himmel über Berlin)
Í samfélagi fólks svífa verndarenglar um og heyra hugsanir þeirra og óskir. Einn þeirra er þó sjálfur með þrár um að upplifa heiminn eins og manneskja og eiga í ástarsambandi, […]
-
048 Bandaríski bjáninn (American Psycho)
Maður sem vinnur óræða vinnu á verðbréfamörkuðum í New York borg þráir umfram allt viðurkenningu frá vinnufélögum sínum. Hann hefur þó hættulega hneigð til þess að myrða fólk og stundar […]
-
047 Vandamál og kínakál (Big Trouble in Little China)
Kurt Russell leikur djúpt þenkjandi bílstjóra með sterka réttlætiskennd. Þegar ástkonu vinar hans er rænt á flugvelli smalar hann saman í lið til að hafa upp á henni. Bílstjórinn og […]
-
046 Transdans (The Rocky Horror Picture Show)
Brad og Janet eru nýtrúlofuð og ástfangin upp fyrir haus. Þau eru á ferðalagi og sprengja dekk á bílnum sínum, og leita því aðstoðar í nágrenni. Þar koma þau að […]
-
045 Denni dæmalausi (Donnie Darko)
Elsti sonurinn á venjulega ameríska heimilinu bjargast á undraverðan hátt frá óútskýrðu flugslysi, og hrindir af stað undarleg atburðarrás. Hann rannsakar tímaferðalög og er sannfærður um að heimsendir sé í […]
-
044 Þú ert drekinn (Enter the Dragon)
Bruce Lee leikur bardagakappa sem er sendur af dularfullri bandarískri nefnd á úthafseyju til að rannsaka lát fjölda ungra kvenna. Hann kemst fljótt að því að háttsettur eigandi eyjarinnar er […]
-
043 Saga Borgarættarinnar (The Royal Tenenbaums)
Stórfjölskylda sem misst hefur allt samband innbyrðis finnur sig knúna til að endurnýja kynnin þegar fjölskyldufaðirinn veikist. Hann er einnig orðinn gjaldþrota og því kemur það sér vel fyrir hann […]
-
042 Galdrakarlinn í DOS (The Matrix)
Það er oft gríðarlega erfitt að standa undir væntingum annarra en Thomas Andersson, eða Neo eins og hann kallar sig í netheimum, gerir sitt besta til að bjarga mannfólki úr […]
-
041 Mömmó (Psycho)
Ástfangin kona tekur lítið ígrundaða ákvörðun að ræna seðlabúntum frá viðskiptavini fyrirtækisins sem hún vinnur hjá og stinga af. Hún keyrir út úr borginni samdægurs og mætir hornauga lögreglunnar sem […]
-
040 Eistnaflug (Top Gun)
Tom Cruise leikur ungan spaða í flughernum sem sýnir ótrúlega hæfileika í loftinu, þó ekki sé hann hár í loftinu. Mynd sem sannarlega fær þig til að grípa andann á […]
-
039 Barnaland (Raising Arizona)
Skemmtileg og óvenjuleg grínmynd um hjón sem langar að eignast barn og taka upp á því að nappa einu af ríkum hjónum. Ungi drengurinn sem þau ræna heillar alla upp […]
-
038 Alein (Alien)
Í vöruflutningarskipi sem ferðast geimshorna á milli er hópur fólks sem óskar einskis heitar að komast heim eftir langan leiðangur. Þau verða vör við varúðarkall frá nálægri plánetu og eins […]
-
037 Reykjavík Derrière (Sódóma Reykjavík)
Eirðarlaus bifvélavirki er dreginn inn í skrýtna atburðarás þegar hann reynir að aðstoða móður sína að finna nýja fjarstýringu fyrir sjónvarpið hennar. Hann lendir í miðjum kjarna á glæpagengi í […]
-
036 Sverðgarnir sjö (Seven Samurai)
Nokkrir bændur úr smáþorpi í Japan sem fæst aðallega við kornrækt komast á snoðir um að ribbaldar ætli sér að ræna uppskerunni. Þeir bregða á það ráð að hóa saman […]
-
035 Fólasaga (Scrooged)
Bill Murray leikur illa innrættan yfirmann á sjónvarpsstöð sem finnur ekki fyrir anda jólanna. Gamlir draugar bregða þá á það ráð að sýna honum fortíð hans, nútíð og framtíð með […]
-
034 Ástarpungar (Love Actually)
Smásögur um ástir og örlög íbúa Londonarborgar fléttast saman í þessari heimsþekktu jólamynd. Við fylgjumst meðal annars með forsætisráðherra Bretlands, gamalgrónum tónlistarmanni, ungum konum og eldri konum hugsa sinn gang […]
-
033 Harðlífi (Die Hard)
John McClane heimsækir eiginkonu sína í aðdraganda jólanna en hjónabandið þeirra hefur gengið brösulega. Hann er starfandi lögreglumaður í New York borg en um leið og hann kemur óvænt í […]
-
032 Blúbbs (Splash)
Tom Hanks leikur ungan mann sem sér um vöruflutninga og þykir lítið til lífsins og ástarinnar koma. Hann kynnist þá konu sem kemur úr óvæntri átt og segir honum fátt […]
-
031 Eggert (Blade)
Ofurhetjan Blade er fæddur sem afkvæmi manns en með eiginleika vampíru. Hann nýtir ofurkraftana sína til að berjast gegn þessari vá sem herjar á íbúa New York borgar. Hann reynir […]
-
030 Geimskutlan (Barbarella)
Barbarellu er falið það verkefni að hafa upp á illmenninu Duran Duran. Hún lendir í ótrúlegum ævintýrum á ferðalagi sínu um geiminn og passar að vera alltaf viðeigandi í klæðaburði.
-
029 Heilinn hans Jóns míns (Being John Malkovich)
Mjög hæfur brúðuleikari sem hefur því miður ekki náð langt í list sinni, finnur fyrir einskæra tilviljun göng á vinnustaðnum sínum sem leiða hann í ævintýralega upplifun á lífi leikarans […]
-
028 Stjörnustríð – Kafli V: Feðraveldið slær til baka (The Empire Strikes Back)
Luke hefur fundið kraftinn innra með sér og leitar á náðir meistara Yoda til að þjálfa hann. Á meðan er samstarfsfólk hans, Leia Prinsessa, Hans Óli og Chewbacca, að beita […]
-
027 Grímuskylda (Halloween)
Aukaþáttur í tilefni af Hrekkjavöku, Hulla og Söndru félagið horfir á hryllingsmynd þar sem ungur drengur myrðir systur sína og er vistaður á geðsjúkrahúsi í framhaldi. Hann sleppur út þegar […]
-
026 Dýrin í Haglaskógi (Bambi)
Líf dýranna í skóginum er ekki alltaf dans á rósum, sérstaklega þegar óboðni gesturinn mætir þangað. Við fylgjumst með Bamba og vinum hans stíga sín fyrstu skref og átta sig […]
-
025 Heimskveldið (Idiocracy)
Hvað ætli gerist í heimi þar sem illa gefnu fólki fjölgar svo að þau útrýma því gáfaða? Meðaljón Ameríku vaknar úr dái í framtíðarríki þar sem hann, fullkomlega áreynslulaust, er […]
-
024 Mektarmenn (Goodfellas)
Glæpagengi í Brooklyn elur upp meðlimi frá unga aldri. Henry litli sinnir hinum ýmsu störfum fyrir glæpóna hverfisins og uppsker ríkulega. Þegar hann er orðinn háttsettur ákveður hann að færa […]
-
023 Stimpilklukkustundir (9 to 5)
Þrjár ungar skutlur vinna á kontórnum á daginn undir gríðarlega þrúgandi nærveru yfirmanns sem hlutgerir þær og hamlar þeim frekari starfsþróun. Eftir röð tilviljana enda þær á að halda honum […]
-
022 Síðasta veiðiferðin (Predator)
Sjálfstætt starfandi hermaður og hans hópur er fenginn til að ráða niðurlögum á óþekktri veru sem virðist vera að leggja frumskóginn undir sig með því að herja á fólk. Skepnan […]
-
021 Lokað fyrir Páli (Pelle Erobreren)
Myndin segir frá sænskum feðgum sem ráða sig í vist á lítilli eyju sunnan af Skáni. Þrátt fyrir að þeir búi við bágar aðstæður þá missir sonurinn Pelle ekki trúnna […]
-
020 Ná-granninn (Beetlejuice)
Barnlaus hjón lenda í bílslysi og drukkna en í staðinn fyrir að kveðja veraldlega heiminn snúa þau aftur í húsið sitt sem draugar. Þau hefja þá ómarkvissar tilraunir til að […]
-
019 Með fátt á hreinu (Dazed and Confused)
Við fylgjumst með unglingum í sjöunni í vernduðu umhverfi í Bandaríkjunum sletta úr klaufunum eftir skólaslit að sumri. Yngstu bekkingar þurfa að þola busun af hendi hinna eldri meðan að […]
-
018 Sjomli (Oldboy)
Dae-su virðist vera mikil fyllibytta og ónytjungur og er fangelsaður í fimmtán ár þrátt fyrir að hafa ekki sýnilega brotið af sér. Þegar hann sleppur úr fangelsinu einsetur hann sér […]
-
017 Flugmaðurinn (Superman)
Þegar nýfæddur Kal-El er sendur aleinn frá deyjandi plánetunni sinni lendir hann á Jörðinni þar sem eldri hjón taka hann að sér og ala hann upp. Honum gengur vel í […]
-
016 Fellarnir í Fellunum (Boyz n the Hood)
Þrír vinir sem kynnast á unga aldri feta saman lífsins veg gegnum erfiðleika, fátækt og lögregluofbeldi. Tímamótamynd sem er byggð að einhverju leyti á upplifunum höfundar og veitti á sínum […]
-
015 Skarkári (Poltergeist)
Amerísk vísitölufjölskylda flytur í fallegt hús í úthverfi í Kaliforníu og hyggur á huggulegt líf þegar undarlegir andar fara að láta á sér kræla. Yngsta dóttirin verður þeirra fyrst vör […]
-
014 Flottar á flótta (Thelma & Louise)
Tvær ungar skjátur ákveða að skella sér í helgarfrí til að losna aðeins frá sínu daglega amstri. Þeim tekst ekki betur til en svo að í upphafi ferðalagsins verður önnur […]
-
013 Olnbogarými (Office Space)
Metnaðarlaus ungur maður vinnur á skrifstofu með erfiðum yfirmanni og þykir fátt til lífs síns koma, þangað til að hann tekur þátt í dáleiðslutíma sem fer örlítið úrskeiðis. En þrátt […]
-
012 Hörundsár (Scarface)
Ungur flóttamaður frá Kúbu kemur sér í mjúkinn hjá eiturlyfjainnflytjanda í Miami. Þrátt fyrir ungan aldur og litla reynslu er hann þó ekki lengi að taka yfir stórveldið hans og […]
-
011 Tóti á móti (My Neighbour Totoro)
Lítil fjölskylda flytur yfir sumartímann í sveitir Japans, til að dreifa huganum á meðan að móðirin liggur á spítala. Dæturnar tvær kynnast nágrönnum, dýrum og alls kyns furðuverum sem dvelja […]
-
010 Bíbí fríkar út (The Birds)
Gáskafull og hvatvís kona hittir heillandi mann í smáfuglabúð í stórborginni, en þegar hann þarf skyndilega að rjúka ákveður hún að elta hann uppi með þá tvo fugla sem hann […]
-
009 Reimholt (Ghost World)
Tvær ungar og nýútskrifaðar stelpur fylgjast með fólki í kringum sig og reyna að finna sinn stað í lífinu. Önnur þeirra kynnist hljómplötuáhugamanni meðan að hin vinnur og leitar að […]
-
008 Hugguleg án heimanmunds (Pretty Woman)
Ung og glæsileg kona aðstoðar aðkomumann í Rauða hverfi Los Angeles við að komast aftur heim á hótelið hans. Maðurinn óskar eftir að hún veiti honum sína nærveru- og kynlífsþjónustu […]
-
007 KJAMS (Jaws)
Ógnvekjandi ófreskja í hafinu skekur heilt sjávarþorp sem hefur sitt lifibrauð af ferðafólki sem sækir þangað í sólina kringum þjóðhátíðardag Bandaríkjanna. Lögreglustjórinn á svæðinu vill krefja bæjaryfirvöld að loka ströndinni […]
-
006 Meðal dóna og þrjóta í Minnesóta (Fargo)
Eldklár lögreglukona í miðríkjum Bandaríkjanna fær morðgátu upp í hendurnar þegar hún kemur að undarlegu bílslysi í vegarkanti. Rannsókn málsins leiðir hana til bílasala sem virðist við fyrstu sýn ekki […]
-
005 Upp, upp, mín sál (Up)
Eftir fráfall æskuástar og eiginkonu hans Carl Fredricksen ákveður hann að halda í draumaferðina þeirra upp að Paradísarfossum. Hann vissi þó ekki að þegar að hann tók á loft í […]
-
004 Jarmsaga (Silence of the Lambs)
Vel þekkta og ógeðþekka mannætan Hannibal aðstoðar lögreglukonuna Clarice við leit að fjöldamorðingja í sýslum Vestur-Virginíu. Þrátt fyrir ógnandi tilburði gagnvart öllu öðru fólki kemur Hannibal vel fram við hana […]
-
003 Brúðarbrölt (The Princess Bride)
Sögulegt ævintýri um The Princess Bride og örvæntingafulla og þyrnum stráða för ástmanns hennar sem hún taldi látinn. Fantasía sem á sér enga líka, Hulli og Sandra ræða hvers vegna […]
-
002 Aktu taktu (Bonnie and Clyde)
Heimsþekkta útlagaparið Bonnie og Clyde eyddu síðustu æviárum sínum á flótta undan lögreglunni og skópu sér einstakt orðspor á meðan. Hulli og Sandra kafa í upphaflegu áhrifavalda áhrifavaldanna í Bandaríkjunum.
-
001 Stjörnustríð – Kafli IV: Þetta reddast (A New Hope)
Velkomin í fyrsta þátt af VÍDJÓ. Hérna er loðfíllinn í skápnum krufinn og kraminn, Star Wars: A New Hope.Tæknibrellur sem áður höfðu ekki sést ásamt leikmynd á alheimsskala. Sandra upplifir […]
HOSF
Hulla og Söndru félagið (HOSF) heldur úti hlaðvörpum í unnvörpum. Þau heita VÍDJÓ og SLAYGÐU.
Stef SLAYGÐU er eftir FM Belfast.
Stef VÍDJÓ er eftir Gunnar Tynes.
Fylgstu með!
Recent Posts
Archives