VÍDJÓ

Hosted ByHugleikur Dagsson & Sandra Barilli

VÍDJÓ er hlaðvarp þar sem Sandra Barilli og Hugleikur Dagsson horfa saman á merkilegustu bíómyndir allra tíma og aðrar jaðarmyndir. Sandra hefur séð merkilega lítið af bíómyndum og er þetta hlaðvarp liður í því að mennta hana á þessu sviði. Hver er betur til þess fallinn en helsti kvikmyndakonnosjör Íslands og erkinördinn Hugleikur Dagsson? Nú, enginn annar heldur en hann.

Vídjó kemur út einu sinni í viku á þriðjudögum. Í lok hvers þáttar má heyra hvaða mynd verður tekin fyrir næst og á facebook síðu þáttarins geta hlustendur komið með tillögu á þýðingu á myndinni. Margar skondnar þýðingar hafa komið fram og hefur það vakið mikla kátínu víða á vefmiðlum. RÚV hefur meðal annars fjallað um þetta uppátæki, sem og Fréttablaðið.

Á Instagram má svo sjá þýðingar á myndunum í plakataformi.

Vídjó hóf útsendingar sínar þann fjórða maí 2021 á allra stærsta loðfíl kvikmyndasögunnar sem hafði einhverra hluta vegna farið alveg framhjá Söndru en það var hið margrómaða Stjörnustríð. Þar á eftir koma gullmolar eins og Thelma and Louise, Scarface, Silence of the Lambs og margar fleiri.

Hver þáttur af Vídjó er sjálfstæður og geta hlustendur því valið að hlusta einungis á myndir sem þau hafa séð en við hvetjum öll að sjálfsögðu til þess að hlusta á þá alla og horfa á myndirnar samhliða til að auka á skemmtunina.

Njótið vel!


All Episodes

005 Upp, upp, mín sál (Up)

Eftir fráfall æskuástar og eiginkonu hans Carl Fredricksen ákveður hann að halda í draumaferðina þeirra upp að Paradísarfossum. Hann vissi þó ekki að þegar að hann tók á loft...

004 Jarmsaga (Silence of the Lambs)

Vel þekkta og ógeðþekka mannætan Hannibal aðstoðar lögreglukonuna Clarice við leit að fjöldamorðingja í sýslum Vestur-Virginíu. Þrátt fyrir ógnandi tilburði gagnvart öllu öðru fólki kemur Hannibal vel fram við...

003 Brúðarbrölt (The Princess Bride)

Sögulegt ævintýri um The Princess Bride og örvæntingafulla og þyrnum stráða för ástmanns hennar sem hún taldi látinn. Fantasía sem á sér enga líka, Hulli og Sandra ræða hvers...

002 Aktu taktu (Bonnie and Clyde)

Heimsþekkta útlagaparið Bonnie og Clyde eyddu síðustu æviárum sínum á flótta undan lögreglunni og skópu sér einstakt orðspor á meðan. Hulli og Sandra kafa í upphaflegu áhrifavalda áhrifavaldanna í...

001 Stjörnustríð – Kafli IV: Þetta reddast (A New Hope)

Velkomin í fyrsta þátt af VÍDJÓ. Hérna er loðfíllinn í skápnum krufinn og kraminn, Star Wars: A New Hope.Tæknibrellur sem áður höfðu ekki sést ásamt leikmynd á alheimsskala. Sandra...