Hullow Dagsson og Xandra Barilli horfa á Buffy the Vampire Slayer og hljóðrita þátt um hvern einasta þátt.
Í þessum þætti: Spike og Adam leggjast á eitt að sundra Buffy og félögum hennar, í þeim tilgangi að Adam geti barist einn á móti Buffy.
Hulla og Söndru félagið (HOSF) heldur úti hlaðvörpum í unnvörpum. Þau heita VÍDJÓ og SLAYGÐU.
Stef SLAYGÐU er eftir FM Belfast.
Stef VÍDJÓ er eftir Gunnar Tynes.