VÍDJÓ

Hosted ByHugleikur Dagsson & Sandra Barilli

VÍDJÓ er hlaðvarp þar sem Sandra Barilli og Hugleikur Dagsson horfa saman á merkilegustu bíómyndir allra tíma og aðrar jaðarmyndir. Sandra hefur séð merkilega lítið af bíómyndum og er þetta hlaðvarp liður í því að mennta hana á þessu sviði. Hver er betur til þess fallinn en helsti kvikmyndakonnosjör Íslands og erkinördinn Hugleikur Dagsson? Nú, enginn annar heldur en hann.

Vídjó kemur út einu sinni í viku á þriðjudögum. Í lok hvers þáttar má heyra hvaða mynd verður tekin fyrir næst og á facebook síðu þáttarins geta hlustendur komið með tillögu á þýðingu á myndinni. Margar skondnar þýðingar hafa komið fram og hefur það vakið mikla kátínu víða á vefmiðlum. RÚV hefur meðal annars fjallað um þetta uppátæki, sem og Fréttablaðið.

Á Instagram má svo sjá þýðingar á myndunum í plakataformi.

Vídjó hóf útsendingar sínar þann fjórða maí 2021 á allra stærsta loðfíl kvikmyndasögunnar sem hafði einhverra hluta vegna farið alveg framhjá Söndru en það var hið margrómaða Stjörnustríð. Þar á eftir koma gullmolar eins og Thelma and Louise, Scarface, Silence of the Lambs og margar fleiri.

Hver þáttur af Vídjó er sjálfstæður og geta hlustendur því valið að hlusta einungis á myndir sem þau hafa séð en við hvetjum öll að sjálfsögðu til þess að hlusta á þá alla og horfa á myndirnar samhliða til að auka á skemmtunina.

Njótið vel!


All Episodes

041 Mömmó (Psycho)

Ástfangin kona tekur lítið ígrundaða ákvörðun að ræna seðlabúntum frá viðskiptavini fyrirtækisins sem hún vinnur hjá og stinga af. Hún keyrir út úr borginni samdægurs og mætir hornauga lögreglunnar...

040 Eistnaflug (Top Gun)

Tom Cruise leikur ungan spaða í flughernum sem sýnir ótrúlega hæfileika í loftinu, þó ekki sé hann hár í loftinu. Mynd sem sannarlega fær þig til að grípa andann...

039 Barnaland (Raising Arizona)

Skemmtileg og óvenjuleg grínmynd um hjón sem langar að eignast barn og taka upp á því að nappa einu af ríkum hjónum. Ungi drengurinn sem þau ræna heillar alla...

038 Alein (Alien)

Í vöruflutningarskipi sem ferðast geimshorna á milli er hópur fólks sem óskar einskis heitar að komast heim eftir langan leiðangur. Þau verða vör við varúðarkall frá nálægri plánetu og...

037 Reykjavík Derrière (Sódóma Reykjavík)

Eirðarlaus bifvélavirki er dreginn inn í skrýtna atburðarás þegar hann reynir að aðstoða móður sína að finna nýja fjarstýringu fyrir sjónvarpið hennar. Hann lendir í miðjum kjarna á glæpagengi...

036 Sverðgarnir sjö (Seven Samurai)

Nokkrir bændur úr smáþorpi í Japan sem fæst aðallega við kornrækt komast á snoðir um að ribbaldar ætli sér að ræna uppskerunni. Þeir bregða á það ráð að hóa...

035 Fólasaga (Scrooged)

Bill Murray leikur illa innrættan yfirmann á sjónvarpsstöð sem finnur ekki fyrir anda jólanna. Gamlir draugar bregða þá á það ráð að sýna honum fortíð hans, nútíð og framtíð...

034 Ástarpungar (Love Actually)

Smásögur um ástir og örlög íbúa Londonarborgar fléttast saman í þessari heimsþekktu jólamynd. Við fylgjumst meðal annars með forsætisráðherra Bretlands, gamalgrónum tónlistarmanni, ungum konum og eldri konum hugsa sinn...

033 Harðlífi (Die Hard)

John McClane heimsækir eiginkonu sína í aðdraganda jólanna en hjónabandið þeirra hefur gengið brösulega. Hann er starfandi lögreglumaður í New York borg en um leið og hann kemur óvænt...