VÍDJÓ

Hosted ByHugleikur Dagsson & Sandra Barilli

VÍDJÓ er hlaðvarp þar sem Sandra Barilli og Hugleikur Dagsson horfa saman á merkilegustu bíómyndir allra tíma og aðrar jaðarmyndir. Sandra hefur séð merkilega lítið af bíómyndum og er þetta hlaðvarp liður í því að mennta hana á þessu sviði. Hver er betur til þess fallinn en helsti kvikmyndakonnosjör Íslands og erkinördinn Hugleikur Dagsson? Nú, enginn annar heldur en hann.

Vídjó kemur út einu sinni í viku á þriðjudögum. Í lok hvers þáttar má heyra hvaða mynd verður tekin fyrir næst og á facebook síðu þáttarins geta hlustendur komið með tillögu á þýðingu á myndinni. Margar skondnar þýðingar hafa komið fram og hefur það vakið mikla kátínu víða á vefmiðlum. RÚV hefur meðal annars fjallað um þetta uppátæki, sem og Fréttablaðið.

Á Instagram má svo sjá þýðingar á myndunum í plakataformi.

Vídjó hóf útsendingar sínar þann fjórða maí 2021 á allra stærsta loðfíl kvikmyndasögunnar sem hafði einhverra hluta vegna farið alveg framhjá Söndru en það var hið margrómaða Stjörnustríð. Þar á eftir koma gullmolar eins og Thelma and Louise, Scarface, Silence of the Lambs og margar fleiri.

Hver þáttur af Vídjó er sjálfstæður og geta hlustendur því valið að hlusta einungis á myndir sem þau hafa séð en við hvetjum öll að sjálfsögðu til þess að hlusta á þá alla og horfa á myndirnar samhliða til að auka á skemmtunina.

Njótið vel!


All Episodes

050 Stjörnustríð – Kafli VI: Jedúddamía (Return of the Jedi)

Nú þegar Logi Geimgengill hefur lokið framhaldsnáminu sínu í Væringjafræðum ákveður hann að herja á Keisaraveldið og föður sinn í leiðinni, en hann er þar innsti koppur í búri....

049 Barningur í Bjarnarborg (Der Himmel über Berlin)

Í samfélagi fólks svífa verndarenglar um og heyra hugsanir þeirra og óskir. Einn þeirra er þó sjálfur með þrár um að upplifa heiminn eins og manneskja og eiga í...

048 Bandaríski bjáninn (American Psycho)

Maður sem vinnur óræða vinnu á verðbréfamörkuðum í New York borg þráir umfram allt viðurkenningu frá vinnufélögum sínum. Hann hefur þó hættulega hneigð til þess að myrða fólk og...

047 Vandamál og kínakál (Big Trouble in Little China)

Kurt Russell leikur djúpt þenkjandi bílstjóra með sterka réttlætiskennd. Þegar ástkonu vinar hans er rænt á flugvelli smalar hann saman í lið til að hafa upp á henni. Bílstjórinn...

046 Transdans (The Rocky Horror Picture Show)

Brad og Janet eru nýtrúlofuð og ástfangin upp fyrir haus. Þau eru á ferðalagi og sprengja dekk á bílnum sínum, og leita því aðstoðar í nágrenni. Þar koma þau...

045 Denni dæmalausi (Donnie Darko)

Elsti sonurinn á venjulega ameríska heimilinu bjargast á undraverðan hátt frá óútskýrðu flugslysi, og hrindir af stað undarleg atburðarrás. Hann rannsakar tímaferðalög og er sannfærður um að heimsendir sé...

044 Þú ert drekinn (Enter the Dragon)

Bruce Lee leikur bardagakappa sem er sendur af dularfullri bandarískri nefnd á úthafseyju til að rannsaka lát fjölda ungra kvenna. Hann kemst fljótt að því að háttsettur eigandi eyjarinnar...

043 Saga Borgarættarinnar (The Royal Tenenbaums)

Stórfjölskylda sem misst hefur allt samband innbyrðis finnur sig knúna til að endurnýja kynnin þegar fjölskyldufaðirinn veikist. Hann er einnig orðinn gjaldþrota og því kemur það sér vel fyrir...

042 Galdrakarlinn í DOS (The Matrix)

Það er oft gríðarlega erfitt að standa undir væntingum annarra en Thomas Andersson, eða Neo eins og hann kallar sig í netheimum, gerir sitt besta til að bjarga mannfólki...