VÍDJÓ

Hosted ByHugleikur Dagsson & Sandra Barilli

VÍDJÓ er hlaðvarp þar sem Sandra Barilli og Hugleikur Dagsson horfa saman á merkilegustu bíómyndir allra tíma og aðrar jaðarmyndir. Sandra hefur séð merkilega lítið af bíómyndum og er þetta hlaðvarp liður í því að mennta hana á þessu sviði. Hver er betur til þess fallinn en helsti kvikmyndakonnosjör Íslands og erkinördinn Hugleikur Dagsson? Nú, enginn annar heldur en hann.

Vídjó kemur út einu sinni í viku á þriðjudögum. Í lok hvers þáttar má heyra hvaða mynd verður tekin fyrir næst og á facebook síðu þáttarins geta hlustendur komið með tillögu á þýðingu á myndinni. Margar skondnar þýðingar hafa komið fram og hefur það vakið mikla kátínu víða á vefmiðlum. RÚV hefur meðal annars fjallað um þetta uppátæki, sem og Fréttablaðið.

Á Instagram má svo sjá þýðingar á myndunum í plakataformi.

Vídjó hóf útsendingar sínar þann fjórða maí 2021 á allra stærsta loðfíl kvikmyndasögunnar sem hafði einhverra hluta vegna farið alveg framhjá Söndru en það var hið margrómaða Stjörnustríð. Þar á eftir koma gullmolar eins og Thelma and Louise, Scarface, Silence of the Lambs og margar fleiri.

Hver þáttur af Vídjó er sjálfstæður og geta hlustendur því valið að hlusta einungis á myndir sem þau hafa séð en við hvetjum öll að sjálfsögðu til þess að hlusta á þá alla og horfa á myndirnar samhliða til að auka á skemmtunina.

Njótið vel!


All Episodes

032 Blúbbs (Splash)

Tom Hanks leikur ungan mann sem sér um vöruflutninga og þykir lítið til lífsins og ástarinnar koma. Hann kynnist þá konu sem kemur úr óvæntri átt og segir honum...

031 Eggert (Blade)

Ofurhetjan Blade er fæddur sem afkvæmi manns en með eiginleika vampíru. Hann nýtir ofurkraftana sína til að berjast gegn þessari vá sem herjar á íbúa New York borgar. Hann...

030 Geimskutlan (Barbarella)

Barbarellu er falið það verkefni að hafa upp á illmenninu Duran Duran. Hún lendir í ótrúlegum ævintýrum á ferðalagi sínu um geiminn og passar að vera alltaf viðeigandi í...

029 Heilinn hans Jóns míns (Being John Malkovich)

Mjög hæfur brúðuleikari sem hefur því miður ekki náð langt í list sinni, finnur fyrir einskæra tilviljun göng á vinnustaðnum sínum sem leiða hann í ævintýralega upplifun á lífi...

028 Stjörnustríð – Kafli V: Feðraveldið slær til baka (The Empire Strikes Back)

Luke hefur fundið kraftinn innra með sér og leitar á náðir meistara Yoda til að þjálfa hann. Á meðan er samstarfsfólk hans, Leia Prinsessa, Hans Óli og Chewbacca, að...

027 Grímuskylda (Halloween)

Aukaþáttur í tilefni af Hrekkjavöku, Hulla og Söndru félagið horfir á hryllingsmynd þar sem ungur drengur myrðir systur sína og er vistaður á geðsjúkrahúsi í framhaldi. Hann sleppur út...

026 Dýrin í Haglaskógi (Bambi)

Líf dýranna í skóginum er ekki alltaf dans á rósum, sérstaklega þegar óboðni gesturinn mætir þangað. Við fylgjumst með Bamba og vinum hans stíga sín fyrstu skref og átta...

025 Heimskveldið (Idiocracy)

Hvað ætli gerist í heimi þar sem illa gefnu fólki fjölgar svo að þau útrýma því gáfaða? Meðaljón Ameríku vaknar úr dái í framtíðarríki þar sem hann, fullkomlega áreynslulaust,...

024 Mektarmenn (Goodfellas)

Glæpagengi í Brooklyn elur upp meðlimi frá unga aldri. Henry litli sinnir hinum ýmsu störfum fyrir glæpóna hverfisins og uppsker ríkulega. Þegar hann er orðinn háttsettur ákveður hann að...